Header Paragraph

Vilmundur sæmdur fálkaorðunni á nýársdag

Image
Vilmundur Guðnason ásamt Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, við afhendingu riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu.

Vilmundur Guðnason, forstöðulæknir Hjartaverndar og prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands, var sæmdur heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum á nýársdag. Vilmundur var í hópi fjórtán einstaklinga sem hlutu viðurkenninguna að þessu sinni. 

Vilmundur hlýtur riddarakrossinn fyrir framlag til rannsókna og forvarna á sviði hjarta- og æðasjúkdóma.

Vilmundur lauk námi í læknisfræði við Háskóla Íslands 1985 og doktorsnámi í sameindaerfðafræði við University College London 1995. Hann hefur starfað sem forstöðulæknir Hjartaverndar í yfir tvo áratugi og jafnframt verið prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands með áherslu á erfðir hjarta- og æðasjúkdóma. Þá hefur hann verið gestavísindamaður við Centre for Cardiovascular Genetics hjá Royal Free og University College í London og hjá Institute of Public Health við Háskólann í Cambridge. 

Eins og fram kemur á Vísindavefnum hafa rannsóknir Vilmundar fyrst og fremst verið á sviði faraldsfræði og erfðafaraldsfræði. Hann hefur m.a. stýrt tveimur umfangsmiklum rannsóknum hér á landi, annars vegar Öldrunarrannsókn Hjartaverndar (AGES Reykjavik study), sem er ein af ítarlegustu rannsóknum á öldrun og áhrifaþáttum sjúkdóma og heilbrigðis þegar aldur færist yfir, og hins vegar  Áhættuþáttakönnun Hjartaverndar (REFINE Reykjavik study).

Þá hefur Vilmundur tekið virkan þátt í alþjóðlegu vísindasamstarfi og komið að mikilvægum uppgötvunum á tilurð og þróun hjarta- og æðasjúkdóma og annarra krónískra sjúkdóma. Auk þessa hefur Vilmundur leiðbeint fjölda nemenda í meistara- og doktorsnámi, bæði hér á landi og erlendis.

Vilmundur er höfundur að hundruðum vísindagreina sem birst hafa í virtum vísindatímaritum eins og Nature, Science, Cell, Nature genetics, JAMA, NEJM og Lancet svo nokkur séu nefnd. Þá hefur hann verið á lista Clarivate yfir þá vísindamenn heims sem oftast hefur verið vitnað í.

Vilmundur hefur fengið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín, þar á meðal heiðursverðlaun úr Verðlaunasjóði Ásu Guðmundsdóttur Wright og Nikkilä-minningarverðlaun Scandinavian Society for Atherosclerosis.

Image
Vilmundur Guðnason ásamt Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, við afhendingu riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu.

Vilmundur Guðnason ásamt Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, við afhendingu riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu. MYND/Forsetaembættið